Hvernig veit ég hvort uppfærsla er í boði?
Þegar uppfærsla er í boði birtist skjágluggi með tilkynningu þess efnis á snertiskjánum. Þú getur einnig athugað handvirkt hvort uppfærslur eru í boði með því að opna „Settings > All Settings > Software update > Check for update“ (Stillingar > Allar stillingar > Hugbúnaðaruppfærsla > Leita að uppfærslu í boði).
Hvernig framkvæmi ég uppfærslu á InControl Touch Pro?
Á snertiskjánum birtist skjágluggi með tilkynningu um að hægt sé að hlaða niður/setja upp uppfærslu. Þegar hún hefur verið samþykkt fer niðurhal og uppsetning í gang. Uppfærslan hefur engin áhrif á akstursupplifun þína og þú getur haldið áfram að nota bílinn eins og vanalega. Þegar uppsetningarferlinu er lokið birtist tilkynning þess efnis á snertiskjánum.
Ég hef þegar samþykkt niðurhalið; get ég samt notað bílinn?
Já, á meðan kerfið er hlaða niður geturðu notað bílinn eins og vanalega.
Hvernig veit ég hvenær hugbúnaðaruppfærslu er lokið?
Tilkynning á snertiskjánum upplýsir þig um það hvenær uppsetningu á hugbúnaðinum er lokið.
Get ég stöðvað uppsetninguna eftir að hún hefst?
Nei, ekki er hægt að stöðva uppsetninguna eftir að hún hefst.
Hvað þarf ég að gera áður en ég set upp uppfærslu?
Til að setja upp uppfærslu þarftu að:
- Kveikja á hugbúnaðaruppfærslum með því að opna „Settings > All Settings > Software update“ (Stillingar > Allar stillingar > Hugbúnaðaruppfærsla)
- Samþykkja skilmálana fyrir niðurhal og uppsetningu
- Hlaða uppfærslunni niður í bílinn þinn
- Viðhalda Wi-Fi- eða farsímatengingu meðan á ferlinu stendur
- Hafa bílinn læstan og kveikt á öryggiskerfum til að uppfærslan geti hafist (gildir aðeins um uppfærslur á tengimöguleikakerfi)
- Þegar uppfæra á rafbíl þarf að taka hleðslusnúruna úr sambandi
Hvernig framkvæmi ég uppfærslu á tengimöguleikakerfi bílsins?
Á snertiskjánum birtist skjágluggi með tilkynningu um að hægt sé að hlaða niður uppfærslu og þegar niðurhali er lokið birtist annar skjágluggi til að setja upp uppfærsluna. Ekki er hægt að stöðva uppsetninguna eftir að hún hefur verið ræst. Uppsetningin getur tekið allt að 30 mínútur. Á þeim tíma geturðu opnað bílinn en ekki er hægt að aka honum fyrr en uppfærslunni er lokið.
Hversu langan tíma tekur uppsetningin á hugbúnaðaruppfærslunni?
Uppsetningin getur tekið allt að 30 mínútur. Þú getur ekki notað bílinn á meðan settar eru upp uppfærslur á tengimöguleika- og rafhlöðustýrikerfi. Þú getur notað bílinn eins og vanalega á meðan uppfærslan á InControl Touch Pro-kerfi stendur yfir.
Þarf ég að vera með nettengingu þegar uppsetningin fer fram?
Já, þú þarft að vera með farsíma- eða Wi-Fi-tengingu fyrir niðurhalið og til að ljúka uppsetningunni.